Tónlistarverkefni:

Þjóðhátíðalag Vestmannaeyja "La Dolce Vita" framleitt í Poppvélinni.

Lagið "Takin´It Back" Daníel Óliver.


Gay Pride-lagið, "Finnum ástin/Feel The Love Tonight" 2011

Sumarlag FM957, "Reykjavíkurnætur" framleitt í Poppvélinni.

Lagið "Superficial" fyrir Daníel Óliver.

Lagið "Ævintýraferð" fyrir sumarherferð Olís 2011.

Framleiddi lagið "Sacred Things" eftir Barða Jóhannsson í flutningi Páls Óskars.

Remixaði lagið "Gordjöss" fyrir Pál Óskar.

Framleiddi lagið fyrir Gay Pride 2010, "Ég er dáinn úr ást" í flutningi Friðriks Ómars.

Framleiddi lagið "Je Ne Sais Quoi" fyrir Heru Björk


Framleiddi lagið "I Don´t Do Boys" fyrir Elektra.

Framleiddi lagið "Jealousy" fyrir Haffa Haff.

Gerði alla tónlist við Áramótaskaup sjónvarpsins 2009.


Gerði lagið "My Heart" fyrir Heru Björk.

Útsetti lagið "
Pride" sem er Gay Pride lag Kaupmannahafnar 2009.

Samdi, útsetti og tók upp lagið "Control" með Haffa Haff og Írisi Hólm.

Útsetti og tók upp lagið "
Með sjálfri mér" fyrir Önnu Hlín.

Útsetti gamla Michael Jackson slagarann "Dirty Diana" fyrir Alan Jones.

Útsetti gamalt Lara Fabian lag í íslenskri útgáfu fyrir Lísu Einars (Idol) sem heitir "Ég er að leita að þér".


Útsetti (remixaði) Eurovisionlagið "Is It True" í dansútgáfu fyrir Jóhönnu Guðrúnu.

Gerði Idol-lagið 2009, "
Ég fer alla leið", fyrir sigurvegarann Hröfnu.

Lagið "I Want To Know" tilbúið fyrir Friðrik Ómar. Lagið er eftir Friðrik Ómar og Örlyg Smára. Textann gerðu þeir Friðrik og Peter Fenner. Útsetning, upptökur og mix á vegum Poppvélarinnar.

Lagið "Komdu aftur" er nú tilbúið fyrir hljómsveitina Elektra. Lagið er eftir Dr. Gunna og stelpurnar sömdu svo textann með Doktornum.

"Give Me Sexy" með Haffa Haff og "Sísí (fríkar út)" með Elektra er farið að hljóma í útvarpi. Bæði lögin fást svo til kaups á Tónlist.is og á næstu Pottþétt-safnplötu.

Nýtt lag með Haffa Haff sem heitir "Give Me Sexy" er væntanlegt í útvarpsspilun á næstu vikum.

Endurgerði lagið Sísí (fríkar út) fyrir
Elektra. Fer væntanlega í útvarpsspilun með vorinu.

Var beðinn um að vera með í Söngvakeppni Sjónvarpsins. Stúlknasveitin Elektra flytur mitt framlag sem heitir "Got No Love".

Tek í gegn fleiri lög, m.a. TF-Stuð, fyrir Pál Óskar fyrir væntanlega safnplötu sem mun bera nafnið Silfursafnið.

Útsetti og endurgerði, tók upp og hljóðblandaði nýjasta smellinn hans Páls Óskars, Sama hvar þú ert.

Remixaði lagið
„Á Bermuda“ með hljómsveitinni Bermuda.

Var að klára „
Club Mix“ af laginu „This Is My Life“. Væntanlegt innan skamms.

Gerði upphafsatriðið og útsetti 3 lög í syrpu fyrir Sálina hans Jóns míns sem var flutt á 20 ára afmælistónleikum sveitarinnar í Laugardalshöllinni 14. mars.

Var að klára nýja útgáfu af laginu „Fullkomið lif“. Lagið heitir núna „This Is My Life“ og er textinn eftir engan annan en Pál Óskar. Laginu er hægt að hlaða niður undir
tónlist hér á þessum vef. Lagið verður flutt í þessum nýja búningi á laugardaginn í lokaúrslitum Laugardagslaganna.

Ýmislegt spennandi í bígerð fyrir
Pál Óskar, t.a.m. nýtt „remix“ af laginu „Betra líf“.

Páll Óskar - Allt fyrir ástina. Fjögur lög samin á plötuna („Allt fyrir ástina“, „International“, „Betra líf“ og „Nú passar allt“, þar að auki útsetning á 8 af 11 lögum plötunnar.

Hljómsveitin
Bermuda fékk þrjú lög á sína plötu „Nýr dagur“, þar á meðal lagið „Sem áður var“ sem er mikið spilað á útvarpsstöðvunum um þessar mundir.

Þær
Hara-systur fengu lagið „Ég hef fengið nóg“. Lagið er á nýju plötu systranna sem heitir „Bara“.

Einar Ágúst fékk lagið „Af stað“ á nýju plötuna sína „Það er ekkert víst að það klikki“.

Lagið,
„Orðin eru óþörf“ er komið í útvarpsspilun með hljómsveitinni Spútnik. Strákarnir fengu lagið en kláruðu svo upptökur og útsetningu sjálfir. Lagið kemur einnig út á plötunni Geðveikt 2 sem er seld til styrktar starfsemi Geðhjálpar.